UM KLÍÓ

Textinn þinn á skilið tíma, athygli og alúð

Klíó er ritstjórnar- og textaþjónusta fyrir höfunda og aðra sem vilja koma vönduðu efni frá sér — frá fyrstu drögum til útgáfu.

SAMSTARF FRÁ FYRSTU SÍÐU

Við vinnum með þér, ekki yfir þér

Góð ritstjórn byggir á trausti. Hvert verkefni fær persónulega nálgun, vandaðan lestur og hreinskilna endurgjöf. Við hlustum eftir rödd höfundarins og hjálpum henni að hljóma skýrar.

Hvort sem verkið er á hugmyndastigi eða rétt ókomið í prentun færðu skýra yfirsýn og faglegan stuðning.

„Markmiðið er ekki að breyta því sem þú vilt segja — heldur hjálpa því að komast alla leið til lesandans.“
BÓKARITSTJÓRI

Sæunn Unu Þórisdóttir

Sæunn Unu Þórisdóttir bókaritstjóri er með meistaragráðu í hagnýtri ritstjórn og útgáfu og B.A.-gráðu í bókmenntafræði með ritlist sem aukagrein.

NAFNIÐ KLÍÓ

Sögugyðjan og innblásturinn

Klíó, eða Kleió (grísku: Κλειώ), er ein af níu menntagyðjum grískra goðsagna. Hún er gyðja söguritunar, hetjuljóða og kveðskapar og hefur ritrollu að einkennistákni. Nafn hennar þýðir „sú sem víðfrægir“ og hún er einnig nefnd Sögugyðjan.

Músurnar voru gyðjur vísinda og lista, dætur Seifs og Mnemosynu, gyðju minnis. Þær voru Kallíópa, Klíó, Erató, Evterpa, Melpómena, Polyhymnía, Terpsikora, Þalía og Úranía.

Nákvæmni
Hlýja
Heiðarleiki
Virðing fyrir röddinni