Hvort sem þú hefur verið að skrifa mikið eða lítið, eða langar bara að byrja en veist ekki hvernig, þá getum við hjálpað þér að finna þinn farveg.
Upphafsfundur er fyrir þig sem ert með uppkast eða heilt handrit.
- Þú sendir okkur textann þinn og stutta lýsingu á verkinu.
- Ritstjóri skoðar efnið og þið hittist á fundi til að fara yfir möguleikana.
- Þú færð stutta skriflega greinargerð um niðurstöðuna og tilboð í framhald ef við á.