ÞJÓNUSTA

Við finnum réttu leiðina fyrir hvert verk

Engin tvö handrit eru eins. Þjónustan er persónuleg, skýr og sniðin að því hvar þú ert í ferlinu.

01

Aðstoð við rithöfunda

Frá fyrstu hugmynd að fullmótuðu handriti. Við hjálpum þér að finna rödd verksins, skerpa á efninu og sjá skýra leið áfram með hlýrri og faglegri ráðgjöf.

02

Textaskrif

Vandaðir textar fyrir bækur, vefi og kynningarefni. Orðfæri, tónn og bygging eru mótuð að markmiði, miðli og lesendum.

03

Prófarkalestur

Nákvæmur yfirlestur á stafsetningu, málfari, greinarmerkjum og samræmi svo textinn sé traustur, lipur og tilbúinn til birtingar.

04

Ritstjórn

Heildræn yfirferð á innihaldi, framvindu, byggingu og stíl. Við styrkjum handritið án þess að rödd höfundarins glatist.

05

Umbrot

Vandað og læsilegt útlit. Við ráðleggjum um síðustærð, letur, orðafjölda og myndnotkun og undirbúum verkið fyrir framleiðslu.

06

Útgáfuþjónusta

Samfelld aðstoð frá handriti til bókar: tilboðsbeiðnir, samskipti við framleiðendur, skjalafrágangur og yfirsýn yfir hvert skref.

UPPHAFSFUNDUR

Ertu með hugmynd eða handrit?

Hvort sem þú hefur verið að skrifa mikið eða lítið, eða langar bara að byrja en veist ekki hvernig, þá getum við hjálpað þér að finna þinn farveg.

Upphafsfundur er fyrir þig sem ert með uppkast eða heilt handrit.

  1. Þú sendir okkur textann þinn og stutta lýsingu á verkinu.
  2. Ritstjóri skoðar efnið og þið hittist á fundi til að fara yfir möguleikana.
  3. Þú færð stutta skriflega greinargerð um niðurstöðuna og tilboð í framhald ef við á.

Textum sem höfundar senda Klíó verður eytt þegar höfundur óskar þess. Gögnin verða ekki send þriðja aðila.

VERÐ ÁRIÐ 2026
25.000 kr.

Fundurinn er án skuldbindinga.

NÁMSKEIÐ

Glæpasaga – frá hugmynd til handrits

Námskeið hjá Endurmenntun. Sjáðu nánari upplýsingar, dagsetningar og skráningu á námskeiðssíðunni.

ERTU MEÐ HANDRIT EÐA HUGMYND?

Tölum saman um næsta kafla