/
HÖFUNDAR

HÖFUNDAR

Kynnstu höfundunum, bókunum þeirra og samstarfinu við Klíó

Adda Guðrún Sigurjónsdóttir
UM HÖFUNDINN

Adda Guðrún Sigurjónsdóttir

Ég er starfandi kennari í leikskóla og húsvörður í íþróttahúsi. Ég hef alltaf getað skrifað og haft þann draum að skrifa bók og gefa hana út, síðan ég var lítil. Svo gerðist bara lífið.

Núna hefur draumur minn ræst og mun vonandi halda áfram að rætast.

1 verk
Bókarkápa Hefnd Þórdísar eftir Adda Guðrún Sigurjónsdóttir
Hefnd Þórdísar · 2026

BÓKIN · 2026

Hefnd Þórdísar

Þrjár menntaskólastúlkur glíma við afleiðingar kynferðisbrota og geta ekki treyst á dómskerfið til að finna réttlæti. Þær leita því leiða handan rúms og tíma og særa fram veru til að senda á gerendur sína. En fljótlega missa þær alla stjórn á þessu sem þær vöktu upp, með hryllilegum afleiðingum.

Næsta verk

Ég er hálfnuð með aðra bók. Hún er nokkurs konar framhald af Hefnd Þórdísar. Þar koma nýjar persónur og tímaflakk meðal annars.

Hvar fást verkin

Bókin fæst í flestum verslunum Eymundsson og hjá Forlaginu. Einnig má hafa samband við höfundinn.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Var mjög ánægð með samstarfið, fékk góðar leiðbeiningar og greinilega mikil vandvirkni. Myndaði gott samband við ritstjórann og hygg á áframhaldandi vinnu með henni.“
Adda Guðrún Sigurjónsdóttir
Jónína Óskarsdóttir
UM HÖFUNDINN

Jónína Óskarsdóttir

Ég hef stundað ritlistarnám undanfarin ár og er að klára núna í haust. Ég kynntist Sæunni ritstjóra í sameiginlegum kúrsi ritlistar- og ritstjórnarnema þar sem gefin var út bók í lokin.

Í framhaldi af því fékk ég Sæunni sem ritstjóra að bók sem ég hafði gengið með lengi. Hún kom mér upp úr hjólförunum og bókin kom út!

1 verk
Bókarkápa Konurnar á Eyrarbakka eftir Jónína Óskarsdóttir
Konurnar á Eyrarbakka · 2023

BÓKIN · 2023

Konurnar á Eyrarbakka

Sitthvað af konu minni hverri

Þetta er viðtalsbók. Viðtöl við 35 konur, fæddar á 100 ára tímabili, sem allar eiga það sameiginlegt að hafa búið á Eyrarbakka. Markmiðið með bókinni var að draga fram og sýna fjölbreytt störf kvenna og daglegt líf þeirra.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Sæunn tók verkefnið mjög fagmannlega. Ég skilaði reglulega texta á umsömdum tíma og fékk yfirlesið til baka. Það jók vinnugleðina við verkið og þar með sjálfstraust við að koma bókinni út. Það gerði gæfumuninn við verkið að fá þennan góða og hvetjandi ritstjóra.“
Jónína Óskarsdóttir
María Karen Sigurðardóttir
UM HÖFUNDINN

María Karen Sigurðardóttir

María Karen Sigurðardóttir (1969) er fædd og uppalin á Akranesi. Hún byrjaði ung að skrifa og hlaut meðal annars viðurkenningu á framhaldsskólaárunum fyrir ljóðagerð sína. María Karen lærði vélsmíði á Akranesi og er forvörður frá Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn og stjórnsýslufræðingur frá Háskóla Íslands.

Skrifin veita mér frelsi til að búa til heima sem hafa verið til á einhvern hátt. Það besta er að á fullorðinsárum mínum gef ég mér leyfi til að skoða heimana frá öðru sjónarhorni; leyfi fjarlægðinni að glæða þá nýju lífi.

1 verk
Bókarkápa Í húsi ömmu Rósu eftir María Karen Sigurðardóttir
Í húsi ömmu Rósu · 2026

BÓKIN · 2026

Í húsi ömmu Rósu

Forvarsla minninganna

Rósa María Þóra Guðmundsdóttir (1917-2010) átti reyfarakennda ævi framan af. Hún var ættleidd af efnuðum hjónum og tilheyrði efri stétt Reykvíkinga á þriðja og fjórða áratug tuttugustu aldar.

Hér skrifar María Karen skáldævisögu um líf ömmu sinnar og notar til þess allsérstaka nálgun. Hún lagðist í nákvæmar rannsóknir á híbýlum Rósu í Reykjavík og á Akranesi og leiðir svo lesanda af mikilli natni og frásagnargleði um hvert herbergið á fætur öðru, alla leið neðan úr kjallara upp á háaloft.

Þessi rannsóknaraðferð kallar fram sögu hlutanna, tilfinningar og minningar, bæði hjá Rósu og höfundi sem bjó lengi í nálægð við ömmu sína á Akranesi. Hugrenningartengsl sem þessi opna á fjölskyldusögur með öllum sínum boðaföllum sem íslenskt samfélag gekk í gegnum á tuttugustu öld. Frásögnin spannar að mestu tímabilið frá 1917 til 1983.

Næsta verk

Ný bók er væntanleg eftir nokkur ár.

Hvar fást verkin

Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum. Einnig má hafa samband við höfundinn.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Góð ritstjórn er gríðarlega mikilvæg þegar unnið er með texta því ekkert fæðist full skapað. Þess vegna er mjög mikilvægt að vinna með konu eins og Sæunni sem þekkir sitt fag. Sæunn er fagleg, styðjandi og nærgætin þegar kemur að tillögum um það sem betur má fara eins og uppröðun kafla ásamt uppbyggingu frásagnarinnar.“
María Karen Sigurðardóttir
Karl Guðmundsson
UM HÖFUNDINN

Karl Guðmundsson

Áhugarithöfundur sem hefur gefið út eina bók, lokið við kvikmyndahandrit og er með drög að fleiri bókum í vinnslu.

1 verk
Bókarkápa Kalli á Hrauni eftir Karl Guðmundsson
Kalli á Hrauni · 2025

BÓKIN · 2025

Kalli á Hrauni

Brot úr sögu ættar og jarðar í eina öld

Jörðin Hraun í Ölfusi hefur verið í byggð síðan á landnámstíð. Hið minnsta fimm þjóðleiðir fara um hlaðið á Hrauni og því hafa fjölmargir ferðalangar komið þar við, þegið kost og gistingu. Jörðin liggur á mörkum Ölfusfora í austri en sandauðnar í vestri. Hafa þessar andstæður bæði valdið búsifjum en einnig veitt hlunnindum til ábúenda Hrauns í gegnum tíðina.

Í bókinni er fjallað um fjórar kynslóðir sem hafa búið á Hrauni frá miðri nítjándu öld en sama ætt hefur yrkt jörðina síðan 1835.

Sagan snýst að mestu um Karl Þorláksson (1915-1995) bónda á Hrauni en einnig er brugðið upp skemmtilegum myndum af fjölskyldu, vinum og samferðafólki. Fjallað er um búskaparhætti, menn og málefni á lifandi hátt. Fjölmargar ljósmyndir, kort og teikningar styðja við frásögnina.

Næsta verk

Alltaf eitthvað í möppunni en ekkert komið á útgáfustig.

Hvar fást verkin

Bókin fæst hjá höfundi. Fyrirspurnir má senda með tölvupósti.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Samstarfið við Klíó kom til á mikilvægum tímapunkti. Ég hafði verið að velkjast með handritið í þó nokkur ár en samstarfið kjarnaði vinnuna vel og kom mér á góðan rekspöl. Sæunn var úrræðagóð og fylgin sér í ritstjórn og Ásdís las textann yfir með natni og nákvæmni. Klíó hjálpaði mér að draga handrit sem var 80% klárt í fullgerða bók.“
Karl Guðmundsson
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir
UM HÖFUNDINN

Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir

Ég er hjúkrunarfræðingur að mennt og hef starfað sem slík allan minn starfsaldur. Eftir starfslok fór ég í skapandi skrif og bókin er afrakstur af því.

1 verk
Bókarkápa Skóhljóð eftir Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir
Skóhljóð · 2024

BÓKIN · 2024

Skóhljóð

Bókin samanstendur af smáprósum, örsögum og ljóðum.

Í bókinni Skóhljóð birtir Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir hugleiðingar um lífið og tilveruna.

Hvar fást verkin

Bókin fæst hjá höfundi.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Sæunn Unu Þórisdóttir hjá Klíó var ritstjóri minn við bókarskrifin. Samstarf okkar var mjög gott og mæli ég eindregið með henni.“
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir
Hjálmar Þór Jensen
UM HÖFUNDINN

Hjálmar Þór Jensen

Hjálmar Þór Jensen lærði Kínversk fræði og ritlist við Háskóla Íslands og sýpur nú seyðið af þeirri ákvörðun. Lindarbrandur er hans fyrsta skáldsaga. Það bað enginn um hana en nú er skaðinn skeður. Hann sér sjálfur ekki eftir neinu.

1 verk
Bókarkápa Lindarbrandur eftir Hjálmar Þór Jensen
Lindarbrandur · 2023

BÓKIN · 2023

Lindarbrandur

Í týndri veröld, í miklum skógi, nálægt afskekktu þorpi …

Þar hefur Lindarbrandurinn staðið fastur í svörtum steini svo árþúsundum skiptir. Þegar sverðið hverfur svo með dularfullum hætti bendir allt til þess að Malena hafi tekið það en hvert fór hún? Og af hverju?

Það fellur í hlut Rúnu, keðjureykjandi og vandræðalega beinskeytt amma Malenu, að halda út í heim að leita hennar. Með í för er líka Hervar gamli, fyrrum málaliði sem hélt nú að hann væri kominn á eftirlaun.

Því hver ætti annars að finna hana Malenu, ef ekki þau?

Hvar fást verkin

Bókin fæst hjá Eymundsson og á Amazon.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Sæunn breytti hráu og óskipulögðu handriti í heilsteypta skáldsögu með næmni og vandvirkni að leiðarljósi. Hún bar virðingu fyrir sýn mína sem höfundur og dró fram kjarna sögunnar svo úr varð mun betri bók en ég þorði að vona.“
Hjálmar Þór Jensen
Hafdís Helgadóttir
UM HÖFUNDINN

Hafdís Helgadóttir

Ég heiti Hafdís Helgadóttir, næringarfræðingur, kennari og rithöfundur. Ég er höfundur barnabókanna Ævintýri Petru papriku og Petra paprika og innrásin. Ég hef sérstakan áhuga á næringarfræðslu barna og því hvernig hægt er að miðla upplýsingum um líkamann og næringu á einfaldan, jákvæðan og skemmtilegan hátt. Á Instagram deili ég reglulega fróðleik og hagnýtum ráðum um næringu fyrir börn, unglinga og fullorðna.

2 verk
Bókarkápa Ævintýri Petru papriku eftir Hafdís Helgadóttir
Ævintýri Petru papriku · 2024

BÓKIN · 2024

Ævintýri Petru papriku

Petra paprika lendir á ókunnugum stað og fer í ævintýraleiðangur að leita svara hvers vegna hún endaði þar. Hún kemst fljótt að því að þessi staður er lítill bær sem kallast Líkaminn. Þar kynnist hún alls kyns furðuverum sem allar hafa sitt hlutverk. Petra paprika lærir ýmislegt um orku og næringarefni í leiðinni.

Mun Petra paprika finna tilgang sinn?

Bókarkápa Petra paprika og innrásin eftir Hafdís Helgadóttir
Petra paprika og innrásin · 2025

BÓKIN · 2025

Petra paprika og innrásin

Enn á ný skyggnumst við inn í ævintýraheim Petru papriku og litríku matvælanna. Ógn steðjar að Líkamanum og mikilvæg skilaboð frá Ónæmiskerfinu berast á Heilsustofnun Líkamans. Petra paprika og félagar þurfa að bregðast hratt við. Bókin er ríkulega myndskreytt og textinn hentar yngstu lesendunum vel. Líkt og í fyrstu bókinni er markmiðið að sameina skemmtilega sögu og fræðslu um næringu og heilsu.

Hvar fást verkin

Bækurnar fást í verslunum Eymundsson og Bókabúð Forlagsins. Einnig er hægt að kaupa þær beint frá höfundi.

SAMSTARFIÐ VIÐ KLÍÓ
„Klíó skrif og ritstjórn gáfu sögunni minni þá faglegu yfirferð sem hún þurfti til að verða að bók. Ég fékk dýrmæta leiðsögn um uppbyggingu sögunnar, samræmi í textanum og hvernig best væri að miðla honum til yngri lesenda“
Hafdís Helgadóttir