Svona fer Klíó með upplýsingar um þig og textana þína.
Klíó skrif og ritstjórn ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fara fram í gegnum þennan vef. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á klio@klio.is eða hringja í síma 864 3338.
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurnum, afgreiða pantanir, veita þá þjónustu sem samið er um og veita aðgang að keyptum námskeiðum og gögnum. Vinnslan byggir á samningi við þig, á lagaskyldu (t.d. um bókhald) eða á samþykki þínu.
Textar sem höfundar senda Klíó eru meðhöndlaðir sem trúnaðarmál. Þeir eru ekki sendir þriðja aðila og þeim er eytt þegar höfundur óskar þess.
Greiðslukortaupplýsingar eru ekki vistaðar hjá Klíó. Greiðslur fara í gegnum öruggan greiðslumiðlara sem vinnur upplýsingarnar samkvæmt eigin skilmálum.
Persónuupplýsingar eru ekki seldar eða afhentar öðrum í markaðsskyni. Þeim er aðeins miðlað til aðila sem nauðsynlegir eru til að veita þjónustuna, svo sem hýsingaraðila vefsins og greiðslumiðlara, eða þegar lög krefjast þess.
Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf er á. Bókhaldsgögn, svo sem reikningar og pantanir, eru varðveitt í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald.
Vefurinn notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur, til dæmis til að muna innihald körfunnar og halda þér innskráðum á Mitt svæði.
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem unnið er með um þig, fá þær leiðréttar eða eytt og andmæla vinnslu þeirra. Hafðu samband á klio@klio.is. Ef þú telur að vinnsla brjóti gegn lögum um persónuvernd getur þú beint kvörtun til Persónuverndar.
Síðast uppfært í október 2026.