Röddin er það sem gerir textann að þínum. Í ritstjórnarferlinu þarf því að greina á milli þess sem er meðvituð stílákvörðun og þess sem truflar lesturinn. Vönduð endurgjöf virðir sérkenni textans og gefur höfundi verkfæri til að taka sínar eigin, upplýstu ákvarðanir.
Textinn fær að leiða ferlið
Gott samstarf hefst á samtali um markmið verksins, lesendur og stöðuna í ferlinu. Þaðan verður til skýr leið sem tekur mið af textanum sjálfum og þörfum höfundarins.
Ef þú ert með handrit eða hugmynd sem þú vilt ræða geturðu sent okkur nokkrar línur. Þú þarft ekki að vera komin með allt á hreint áður en samtalið hefst.