SKILMÁLAR

Skilmálar

Skilmálar um kaup á þjónustu og námskeiðum hjá Klíó.

Almennt

Skilmálar þessir gilda um kaup á þjónustu og námskeiðum hjá Klíó skrif og ritstjórn í gegnum vefinn klio.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi skilmálana.

Þjónusta og verð

Klíó býður meðal annars ritstjórn, prófarkalestur, textaskrif, umbrot, útgáfuþjónustu og námskeið. Öll verð eru í íslenskum krónum. Klíó áskilur sér rétt til að breyta verðum og leiðrétta augljósar villur í verðum eða lýsingum.

Pöntun og greiðsla

Þegar pöntun hefur verið staðfest fær kaupandi staðfestingu í tölvupósti. Eftir að greiðsla hefur borist hefur Klíó samband til að finna tíma og ákveða næstu skref. Námskeiðsgögn og tenglar á fjarfundi birtast á Mitt svæði þegar greiðsla hefur verið móttekin.

Afhending

Þjónusta er veitt samkvæmt samkomulagi við kaupanda hverju sinni. Stafræn námskeiðsgögn eru afhent á Mitt svæði og í tölvupósti.

Réttur til að falla frá kaupum

Kaupandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá pöntun með því að senda tölvupóst á klio@klio.is og fær þá endurgreitt. Rétturinn fellur niður þegar þjónustan hefur að fullu verið veitt með samþykki kaupanda, þegar fjarfundur eða námskeið hefur farið fram, og þegar niðurhal á stafrænum gögnum er hafið.

Breytingar og afbókanir

Ef kaupandi þarf að færa fund eða afbóka er hann beðinn að láta vita með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Ef Klíó þarf að fella niður námskeið eða fund er boðinn nýr tími eða full endurgreiðsla.

Trúnaður

Textar og handrit sem kaupandi sendir eru meðhöndluð sem trúnaðarmál, ekki send þriðja aðila og eytt þegar kaupandi óskar þess. Höfundarréttur að verkinu er alfarið kaupanda.

Persónuvernd

Farið er með persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarstefnu Klíó.

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa má leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða Héraðsdóms Reykjavíkur.

Hafa samband

Klíó skrif og ritstjórn · klio@klio.is · 864 3338

Síðast uppfært í október 2026.